Setur piparköku í kokteilhristarann
Matur | mbl | 19.11.2026 | 20:00
Linda Benediktsdóttir notar klessupiparköku í rjómakenndan kokteil með piparköku- og vanillubragði. Ljósmynd/Aðsend
Piparkökur eiga ekki aðeins heima á kökudiskinum. Linda Benediktsdóttir notar heila klessupiparköku í þennan rjómakennda kokteil sem hún segir hafa slegið í gegn þegar hún bauð vinkonum sínum í jólaföndur og bakstur á dögunum.
Í drykknum mætast piparköku- og vanillubragð ásamt rjóma og nýmjólk. Kakan er hrist saman við hráefnin og að lokum fær hálf piparkaka að prýða glasið. Uppskriftina er að finna á uppskriftavef Lindu Ben.
Klessupiparkökumartíní
Fyrir 1 glas.
- 50 ml rjómalíkjör með piparkökubragði
- 30 ml vanilluvodka
- 30 ml rjómi
- 30 ml nýmjólk
- Klakar
- 1 klessupiparkaka frá Lindu Ben
- ½ klessupiparkaka frá Lindu Ben til skrauts
Aðferð
- Setjið rjómalíkjör, vanilluvodka, rjóma, nýmjólk og eina klessupiparköku í kokteilhristara ásamt klökum.
- Hristið vel í 30 sekúndur þar til drykkurinn er ískaldur og örlítið froðukenndur.
- Sigtið í kokteilglas og skreytið með hálfri klessupiparköku.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/35/1693549.jpg)
