Styðja dótturina næstu 17 árin

Jesús de Miguel.

Jesús de Miguel. AFP/Handout/CD Tenerife

Spænska knattspyrnufélagið Tenerife, sem leikur í næstefstu deild, hefur heitið því að styðja fjárhagslega við eins árs gamla dóttur Jesúsar de Miguel, Cörlu, þar til hún verður 18 ára, eftir andlát föður hennar.

Framherjinn, sem var þrítugur, lést 3. nóvember eftir að hafa lent í samstuði við Jesús Owono, markvörð Andorra, í leik kvöldið áður.

„Við viljum vera til staðar fyrir hana að minnsta kosti þar til hún verður fullorðin,“ sagði Antonio Manuel Porro Granados, framkvæmdastjóri Tenerife, í samtali við The Athletic.

Hann sagði að félagið myndi veita stuðning umfram lagalegar skyldur sínar.

Félagið Burgos hefur boðist til að gefa fjölskyldunni miðasölutekjur af leik sínum gegn Tenerife.

Meira en 100.000 evrur hafa safnast í sérstakri fjársöfnun sem Fran Sol, fyrrverandi sóknarmaður Tenerife, hrinti af stað.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab