Telur að Ingvar eigi að segja af sér þingmennsku
Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 19:48
Að mati Gunnars hefur Ingvar ekki umboð kjósenda til að fara með þingsætið til annars flokks.
Gunnar Salvarsson, fyrrverandi fréttamaður og dagskrárgerðarmaður, telur að Ingvar Þóroddsson eigi að segja af sér þingmennsku. Hann hafi ekkert umboð til þess að sitja á Alþingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins.
„Ingvari er frjálst að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Vilji hann sitja á Alþingi fyrir þann flokk finnst mér eðlilegt að hann biðji kjósendur um umboð til þess. Þeir eiga að fá að svara við kjörborðið,“ segir Gunnar í aðsendri grein á Vísi.
Eins og flestir vita sagði Ingvar Þóroddsson, þingmaður í Norðausturkjördæmi, sig úr þingflokki Viðreisnar og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Minnkaði þingstyrkur ríkisstjórnarinnar þar með úr 34 mönnum í 33.
„Mér fannst í fyrstu að fjölmiðlar gerðu kannski helst til mikið úr þeirri ákvörðun Ingvars Þóroddssonar á dögunum að skipta um lið í hálfleik. En eftir á að hyggja sé ég ekkert eðlilegt við vistaskipti hans úr Viðreisn yfir í Sjálfstæðisflokkinn á miðju kjörtímabili,“ segir Gunnar og hvetur Ingvar til þess að segja af sér þingmennsku. „Að mínu mati felur ákvörðun hans bæði í sér óheilindi og trúnaðarbrest gagnvart kjósendum í Norðausturkjördæmi sem greiddu götu hans inn á þing. Þeir gáfu honum hins vegar ekki umboð, að því er ég best veit, til að fjölga þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.“
Heiðarlegast að ganga á dyr
Sanngjarnt og eðlilegt sé að krefjast þess að þingmaður sem gengur í annan flokk á miðju kjörtímabili víki úr þingsæti. Varaþingmaður á sama lista taki þá við þingsætinu. Heiðarlegast hefði verið fyrir Ingvar að ganga á dyr og segja við þingheim: „Ég rata út.“
Sjá einnig:
Ingvar Þóroddsson segir sig úr þingflokki Viðreisnar og gengur í annan flokk
„Ingvar er sagður hafa fylgt sannfæringu sinni. Gott og vel. Það er ljómandi fínt að þingmenn greiði atkvæði eftir eigin sannfæringu, líka þegar það kemur sér illa fyrir flokkinn. Ingvar gat dregið stuðning sinn við ríkisstjórnina til baka, sagt sig úr þingflokknum og setið áfram utan þingflokka. Sannfæring hans getur skýrt hvers vegna hann fór úr Viðreisn. Eftir stendur spurningin hvers vegna honum þótti rétt að taka sætið með sér í annan þingflokk,“ segir Gunnar.
Áhrif á starfsmenn
Bendir hann á að Viðreisn hafi meðal annars misst starfsmann út af þessu og Sjálfstæðisflokkurinn fengið auka starfsmann. Skattgreiðendur greiði fyrir þennan starfsmann og starfsaðstöðu hans.
„Vistaskipti Ingvars Þóroddssonar eru honum sjálfum, Alþingi og stjórnmálaflokkunum til vansa. Í kerfinu er innbyggður ágalli sem þarf að lagfæra,“ segir Gunnar. „Fyrir næstu kosningar ættu stjórnmálaflokkarnir að gera það að skilyrði fyrir sæti á framboðslista að frambjóðendur gefi kjósendum einfalt, opinbert loforð. Vilji þeir ganga í annan þingflokk á kjörtímabilinu segi þeir fyrst af sér þingmennsku. Þá tekur varaþingmaður af sama lista við. Til að gefa slíkt loforð þarf enga lagabreytingu. Á loforðið reynir þegar þingmaður þarf að láta sætið af hendi til að standa við það.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗