Ragnhildur ómyrk í máli vegna hegðunar fólks á útgáfudegi GTAVI – „Það er auðvitað sjúkt í sjálfu sér“

Kristinn H. Guðnason

Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 20:00

Ragnhildur bendir á að veikindarétturinn sé ekki sjálfsagður og hann eigi ekki að misnota.

Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, er ómyrk í máli gagnvart þeim sem hafi „tekið sér“ veikindadag til þess að spila GTA VI. Veikindarétturinn sé mikilvægur réttur sem hafi fengist með langri baráttu og að honum fylgi líka skyldur.

„Það er furðulegur fjári að sífellt skuli tönnlast á því að líklega muni margir „taka sér veikindadag“ til að spila frægan tölvuleik. Af hverju er þetta ekki kallað sínu rétta nafni: að ljúga til um veikindi?“ segir Ragnhildur í færslu á samfélagsmiðlum.

Stærsti tölvuleikur sögunnar

Tilefni færslunnar er útgáfa tölvuleiksins Grand Theft Auto VI á Playstation leikjatölvum. Leikurinn er talinn vera sá stærsti frá upphafi, bæði hvað varðar framleiðslukostnað og sölu, en hann hefur verið í bígerð í átta ár.

Sjá einnig:

Allt sem þú gætir viljað vita um GTA VI

Vegna langþráðrar útgáfu hans hefur verið fjallað um að margir hafi „hringt sig inn veika“ eða tekið sér frídag til þess eins að sitja heima og spila tölvuleikinn, eða jafn vel í nokkra daga. Þetta geti jafn vel haft áhrif á hagtölur og framleiðni, að minnsta kosti í stutta stund.

Ekki sjálfsögð réttindi

Ragnhildur bendir hins vegar á að sú hegðun að „taka sér veikindadag“ án þess að vera raunverulega veikur sé ekkert annað en lygi og misnotkun á réttinum. Rétti sem er alls ekki sjálfsagður.

„Veikindarétturinn fékkst með langri baráttu verkalýðshreyfingarinnar og tryggir að fólk sem veikist haldi tekjum sínum á meðan,“ segir Ragnhildur. „Því miður virðist fólk halda að veikindarétturinn sem eins konar orlof og best sé að nýta þessa tvo daga í mánuði, sem það telur sig eiga rétt á, þótt engin séu veikindin. Það er ekkert annað en misnotkun á þessum mikilvægum réttindum. Þau eru nefnilega oft þannig, blessuð réttindin, að þeim fylgir líka skylda.“

Ábyrgð fjölmiðla

Beinir hún einnig spjótum sínum að fjölmiðlum og bendir á ábyrgð þeirra.

„Ég vildi óska að fjölmiðlar hættu að éta upp, eins og einhverja gamansögu, að fólk ætli sér að „nota veikindadag“ eða „taka veikindadag“ þegar að baki liggur einfaldlega að fólk lýgur að vinnuveitandanum svo það geti verið heima í tölvuleik,“ segir hún. „En það er auðvitað sjúkt í sjálfu sér.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab