Andrea að gera glæsilega hluti á Spáni
Andrea Bergsdóttir er jöfn í öðru sæti fyrir lokahring Islantilla Open á LET Access-mótaröðinni í golfi á Spáni. Hún lék annan hringinn á 68 höggum í dag, fjórum undir pari, og er samtals á fjórum höggum undir pari eftir tvo hringi.
Andrea hóf daginn jöfn í tíunda sæti eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á pari. Hún deilir nú öðru sætinu með þremur öðrum kylfingum, tveimur höggum á eftir Spánverjanum Marinu Escobar Domingo.
Ragnhildur Kristinsdóttir komst einnig í gegnum niðurskurðinn. Hún lék á 74 höggum í dag, tveimur yfir pari, og er jöfn í 44. sæti á sex höggum yfir pari samtals. Niðurskurðurinn miðaðist við það skor.
Hulda Clara Gestsdóttir er hins vegar úr leik. Hún bætti sig um átta högg frá fyrsta hring og lék á pari í dag, 72 höggum. Það dugði þó ekki til og hafnaði hún jöfn í 60. sæti á átta höggum yfir pari.
Þetta er lokamót tímabilsins og lýkur því á morgun. Sjö efstu kylfingar stigalistans að mótinu loknu tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni, sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, á næsta ári. Andrea var í 24. sæti listans fyrir mótið, Ragnhildur í því 21. og Hulda í því níunda.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/36/1693602.jpg)