Fram valtaði yfir ÍBV
Fram vann stórsigur á ÍBV, 35:21, á útivelli í úrvalsdeild karla í handbolta í kvöld. Framarar voru átta mörkum yfir í hálfleik, 20:12, og bættu enn við forskotið eftir hlé.
Bæði lið eru nú með tíu stig í 6.–7. sæti.
Ívar Logi Styrmisson var markahæstur hjá Fram með sjö mörk. Dagur Fannar Möller og Haukur Ingi Hauksson skoruðu sex mörk hvor. Arnór Máni Daðason varði níu skot og var með 39 prósenta markvörslu.
Dagur Arnarsson og Sveinn José Rivera skoruðu fjögur mörk hvor fyrir ÍBV. Petar Jokanović varði níu skot í marki Eyjamanna.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗