Opnað á ný fyrir umsóknir vegna atvinnuástands

Háskóli Íslands.

Háskóli Íslands. mbl.is/Ómar

Háskóli Íslands hefur ákveðið að opna á ný fyrir umsóknir um nám í afmörkuðum fjölda námsleiða á framhaldsstigi á vormisseri 2027.

Þetta kemur fram í tilkynningu en með þessu segist skólinn vilja koma til móts við þann hóp sem nýverið hefur misst vinnuna í íslensku samfélagi og gefa honum færi á að mennta sig til nýrra tækifæra.

Fjöldauppsagnir sögð ástæðan

Upphaflegur umsóknarfrestur um framhaldsnám á vormisseri var 15. október en hann hefur nú verið framlengdur til 30. nóvember.

Sú ákvörðun var tekin vegna þeirra fregna sem hafa borist af fjöldauppsögnum á síðustu vikum og auknu atvinnuleysi í íslensku samfélagi. 

„Til að bregðast við því samþykkti háskólaráð Háskóla Íslands ályktun á síðasta fundi sínum þar sem rektor var falið að heimila undanþágu frá hefðbundnum umsóknarfrestum fyrir þær deildir sem það kjósa og taka inn nemendur á vormisseri,“ segir í tilkynningu háskólans.

Með því að opna aftur fyrir umsóknir um framhaldsnám vilji skólinn sýna samfélagslega ábyrgð og fjölga tækifærum fyrir fólk nú þegar kreppir að í samfélaginu.

Umsóknir fara ekki í gegnum umsóknargátt

Tekið er fram að umsóknir vegna þessarar ákvörðunar fara ekki í gegnum umsóknargátt skólans, eins og venja er, heldur eru væntanlegir umsækjendur um framhaldsnám á vormisseri beðnir um að senda umsóknir sínar á [email protected] fyrir 30. nóvember.

Lista yfir þær námsleiðir í framhaldsnámi sem hægt er að sækja um má finna á vef skólans.

Þá er vakin athygli á því að umsóknarfrestur um grunnnám á vormisseri er líkt og áður 30. nóvember.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab