Bergmál á Vestfjörðum næsta sumar

Stemningin á Þingvöllum var mikil í sumar.

Stemningin á Þingvöllum var mikil í sumar. mbl.is/Hákon

Tónlistarhátíðin Bergmál verður haldin á Vestfjörðum í ágúst á næsta ári. Þegar liggur fyrir að Bubbi Morthens, Kaleo, Eivör, Ragga Gísla, Fjallabræður og Mugison koma fram.

Í tilkynningu segir að hátíðin standi yfir 4.-8. ágúst og teygi sig um Vestfirði. Stórtónleikar verða í Ísafjarðarhöfn föstudag og laugardag.

Sem kunnugt er var Bergmál haldið á Þingvöllum síðasta sumar.

„Stundum eru engin orð, en fjöllin hafa vakað og beðið eftir okkur,“ segir Bubbi Morthens í tilkynningu. Þar er líka haft eftir meðlimum Kaleo að þeir hvetji landsmenn til að koma með sér vestur og búa til minningar saman.

Kaleo á sviðinu á Þingvöllum síðasta sumar.

Kaleo á sviðinu á Þingvöllum síðasta sumar. Hákon Pálsson

„Það er mér mikill heiður að leiða Bergmál á Vestfjörðum. Ég á ættir að rekja til Vestfjarða og því stendur þetta verkefni hjarta mínu sérstaklega nærri. Við höfum strax fundið einstakan meðbyr í samfélaginu fyrir vestan og ég hlakka gríðarlega til samstarfsins við fólkið þar,“ segir Ósk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Bergmáls.

„Við viljum búa til þessa hátíð með Vestfirðingum, ekki bara fyrir þá. Hver bær og hvert þorp á sína sögu og okkur langar að hún fái að hljóma á Bergmáli. Ef þú lumar á hugmynd að viðburði, hvort sem það er brauðtertuboð í félagsheimilinu eða uppistand inni í kirkju, þá viljum við endilega heyra frá þér á [email protected]. Við tökum öllum hugmyndum fagnandi. Til að þetta takist þurfum við stuðning alls samfélagsins og allar hendur eru velkomnar, hafðu bara samband.“

Hátíðin hefst með opnunartónleikum við Dynjanda. Miðarnir eru örfáir og verða ekki seldir; dregið verður út í happdrætti eingöngu úr hópi miðahafa á Bergmál. Dregið verður 24. desember. Bergmál sendir póstkort á öll heimili landsins svo enginn missi af því sem er í vændum fyrir vestan. Þeir sem skrá sig á póstlista á bergmal.is fá aðgang að forsölu miða 1. desember, segir í tilkynningu.

Alls verða 8.000 miðar í boði og miðaverð er 24.900 kr. Miðasala fer fram á tix.is og allar upplýsingar verða á bergmal.is.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab