Opnað á ný fyrir umsóknir vegna atvinnuástands
Háskóli Íslands hefur ákveðið að opna á ný fyrir umsóknir um nám í afmörkuðum fjölda námsleiða á framhaldsstigi á vormisseri 2027.
Þetta kemur fram í tilkynningu en með þessu segist skólinn vilja koma til móts við þann hóp sem nýverið hefur misst vinnuna í íslensku samfélagi og gefa honum færi á að mennta sig til nýrra tækifæra.
Fjöldauppsagnir sögð ástæðan
Upphaflegur umsóknarfrestur um framhaldsnám á vormisseri var 15. október en hann hefur nú verið framlengdur til 30. nóvember.
Sú ákvörðun var tekin vegna þeirra fregna sem hafa borist af fjöldauppsögnum á síðustu vikum og auknu atvinnuleysi í íslensku samfélagi.
„Til að bregðast við því samþykkti háskólaráð Háskóla Íslands ályktun á síðasta fundi sínum þar sem rektor var falið að heimila undanþágu frá hefðbundnum umsóknarfrestum fyrir þær deildir sem það kjósa og taka inn nemendur á vormisseri,“ segir í tilkynningu háskólans.
Með því að opna aftur fyrir umsóknir um framhaldsnám vilji skólinn sýna samfélagslega ábyrgð og fjölga tækifærum fyrir fólk nú þegar kreppir að í samfélaginu.
Umsóknir fara ekki í gegnum umsóknargátt
Tekið er fram að umsóknir vegna þessarar ákvörðunar fara ekki í gegnum umsóknargátt skólans, eins og venja er, heldur eru væntanlegir umsækjendur um framhaldsnám á vormisseri beðnir um að senda umsóknir sínar á [email protected] fyrir 30. nóvember.
Lista yfir þær námsleiðir í framhaldsnámi sem hægt er að sækja um má finna á vef skólans.
Þá er vakin athygli á því að umsóknarfrestur um grunnnám á vormisseri er líkt og áður 30. nóvember.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗