Spilaði tölvuleik langt fram eftir nóttu fyrir fyrstu æfingu með Pochettino

Bryan Mbeumo, leikmaður Manchester United, var einn fjölmargra knattspyrnumanna sem biðu spenntir eftir útgáfu tölvuleiksins Grand Theft Auto VI, sem kom út á miðnætti.

Mbeumo birti mynd af upphafsskjá leiksins á Instagram um leið og hann varð aðgengilegur og skrifaði við myndina: „Sögulegt.“

Þetta gerist á sama tíma og Mauricio Pochettino, nýr knattspyrnustjóri United, stýrir sinni fyrstu æfingu hjá félaginu.

Ekki er vitað hversu lengi Mbeumo spilaði um nóttina, en hann hefur áður lýst mikilli eftirvæntingu eftir leiknum.

„Þessi leikur mun halda mér heima á hverjum einasta degi eftir æfingar,“ sagði Mbeumo í eldra viðtali.

Alexander Isak, framherji Liverpool, hefur einnig lýst yfir miklum áhuga á leiknum.

„Það verður erfitt að ná sambandi við mig frá 19. nóvember. Ég verð alveg niðursokkinn í þetta,“ sagði Isak.

United mætir Liverpool á Anfield á sunnudaginn í fyrsta leik Pochettino við stjórnvölinn.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab