Aron Einar nefnir einn starfsmann KSÍ sem stóð með sér í blíðu og stríðu - „Einn af þeim fáu“

Hörður Snævar Jónsson

Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 19:30

Aron Einar heiðraður fyrir leik. Mynd: DV/KSJ

Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins, hefur sent Ómari Smárasyni, fjölmiðlafulltrúa landsliðsins til margra ára, sérstakar þakkir fyrir stuðninginn í gegnum tíðina.

Aron Einar lék sinn síðasta landsleik gegn Lúxemborg á dögunum og hefur nú kvatt landsliðið eftir langan og farsælan feril í íslensku landsliðstreyjunni.

Í færslu á Instagram birti Aron mynd af sér ásamt Ómari Smárasyni, sem hefur starfað sem fjölmiðlafulltrúi íslenska landsliðsins um langt skeið.

Með myndinni fylgdu einlægar þakkir þar sem Aron Einar rifjaði upp stuðning Ómars á erfiðum tímum, meðal annars þegar hann var fjarri landsliðinu.

„Special shoutout á þennan mann, hefur varið mig og staðið með mér í gegnum mistök og svo tímann í burtu frá landsliðinu, einn af þeim fáu,“ skrifaði Aron Einar og bætti við rauðu hjarta.

„Takk king Ómar.“

Af orðum Arons má ráða að stuðningur Ómars hafi skipt hann miklu máli, ekki síst þegar á móti blés á ferlinum með landsliðinu

Aron Einar var um árabil einn af lykilmönnum íslenska landsliðsins og fór fyrir liðinu á bæði EM 2016 og HM 2018.

Kveðja hans til Ómars sýnir að það eru ekki aðeins samherjarnir inni á vellinum sem hafa skipt máli á löngum landsliðsferli hans, heldur einnig fólkið sem hefur starfað í kringum liðið.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab