Úrslitin gætu ráðist í beinni
Úrslit gætu ráðist í úrvalsdeildinni í bridds sunnudagskvöldið 29. nóvember þegar leikið verður í beinni sjónvarpsútsendingu.
Sveit Frímanns Stefánssonar að norðan mætir sveit Sveins Rúnars í viðureign sem gæti orðið hreinn úrslitaleikur. Sveit Frímanns er ósigruð í mótinu en sveit Sveins hefur tapað einum leik, naumlega gegn sveit Frímanns. Allar sveitir hófu keppni með tvö líf, ef svo má segja.
Sveit fellur úr leik við annað tap. Sveit Frímanns má því við einu tapi til viðbótar en sveit Sveins ekki. Sigri sveit Frímanns verður hún úrvalsdeildarmeistari á haustönn 2026. Annars mætast sveitirnar í hreinum úrslitaleik viku síðar.
Magnús E. Magnússon, landsliðsmaður og briddskennari, mun greina leikina. Hægt verður að fylgjast með á Rafíþróttum Símans, Twitch og YouTube. Á Facebook-síðunni Bridgespjallið birtist hlekkur á útsendingu hvers leiks nokkrum mínútum áður en spilamennska hefst, laust fyrir klukkan 19. Útsendingarnar geta einnig nýst nýliðum sem kennslutæki.
1.
Næsta sunnudagskvöld, 22. nóvember, verður æfingaleikur milli íslenska kvennalandsliðsins og norska kvennalandsliðsins, ríkjandi Evrópumeistara. Ljósbrá Baldursdóttir lýsir þeim leik með Magnúsi.
Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, segir mjög mikla ánægju meðal briddsara með þjónustuna í Úrvalsdeildinni. Um nýjung í bridds er að ræða að nýta sér sjónvarpsútsendingar hér á landi með þessum hætti.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗