Var kjóllinn of gulur?
CMA-sveitasöngvaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn við Nashville í Tennessee í vikunni. Taylor Swift lét sig ekki vanta á verðlaunahátíðina og mætti í gulum kjól þannig að það fór ekki á milli mála að hún væri mátt á svæðið.
Swift leit út eins og sólin í gula kjólnum sem var frá Oscar de la Renta. Kjóllinn er úr vorlínu merkisins fyrir árið 2027. Spurning hvort að kjóllinn hafi verið aðeins of gulur en Swift bar hann vel. Við kjólinn var tónlistarkonan með fallega eyrnalokka og í gylltum hælaskóm.
Kúrekahattar voru áberandi
Fleiri fallegir kjólar voru á svæðinu en einnig voru kúrekahattar og kúrekastígvél áberandi á rauða dreglinum enda ekki annað við hæfi þegar kántrítónlist og Nashville er annars vegar.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗









