Allt í steik í Tyrklandi - Óvíst hvort leikurinn í Meistaradeildinni geti farið fram

Miklar áhyggjur eru af ástandi heimavallar Galatasaray fyrir leik liðsins gegn Aston Villa í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn.

Myndir sem birtust í vikunni sýna grasflötina í afar slæmu ástandi og vinnur tyrkneska félagið nú hörðum höndum að því að koma vellinum í leikhæft ástand.

Galatasaray hefur meðal annars ákveðið að færa heimaleik sinn gegn Samsunspor um helgina á völl Istanbul Basaksehir til að hlífa grasinu.

Samkvæmt Daily Mail hefur UEFA verið í samskiptum við Galatasaray og telur að völlurinn verði tilbúinn fyrir leikinn á þriðjudaginn.

Formleg úttekt á vellinum fer þó fram að morgni leikdags.

Aston Villa hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum í Meistaradeildinni en tapaði síðast gegn Barcelona.

Lærisveinar Unai Emery mæta Sunderland í ensku úrvalsdeildinni um helgina áður en þeir halda til Tyrklands.

Óvissa ríkir um þátttöku Matty Cash og Johan Manzambi vegna meiðsla sem þeir urðu fyrir í landsleikjahléinu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab