Össur ljóstrar upp um sinn síðasta fund með Davíð - Davíð kom með óvænt tilboð
Össur Skarphéðinsson fyrrum ráðherra segir hann efist um að bók þeirra feðga Reynis Traustasonar og Jóns Trausta Reynissonar um Davíð Oddsson sé tímabær þegar svo skammt sé liðið frá andláti Davíðs. Sjálfur hafi Össur beðist undan viðtali um Davíð en í færslu á Facebook segir hann frá þeirra síðasta fundi þar sem Davíð kom með óvænt tilboð.
Bókin Davíðstíminn hefur vakið mikla athygli, meðal annars hefur Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor emerius sagt að hún sé skrifuð af spjallmenni en Jón Trausti benti honum pent á það að spjallmenni séu ekki komin á það stig að geta tekið viðtöl við fólk.
Sjá einnig: Hrunið kallaði það versta fram í Davíð – en hann átti líka sínar góðu hliðar
Sjá einnig: „Hvorki skrifuð af spjallmenni né skjallmenni“
Össur segir að bókin sé þó ómissandi lesning fyrir áhugafólk um stjórnmál.
„Feðgabókin er að mörgu leyti frábært heimildarrit, og síður en svo sú fordæming á Davíð sem svartstakkar halda fram - greinilega án þess að hafa lesið hana. Stundum finnst mér raunar feðgarnir seilast fulllangt til að spegla hann í jákvæðu ljósi. Hann var, þrátt fyrir allt, ekki aðeins maður mikillar pólitískrar kúnstar heldur líka maður mikilla galla,“ segir Össur.
„Við Davíð vorum bæði vinir og óvinir, stundum hvort tveggja í senn. Í miðjum deilum um fjölmiðlalögin 2004 sagði hann við mig klukkan 02:00 á efstu hæð SAS hótelsins í Kaupmannahöfn að við yrðum, þrátt fyrir allt, vinir ævilangt. Það fór þó ekki svo. Í Ráðherrabústaðnum hafnaði ég því í miðju hruni að hann yrði formaður sérstakrar yfirstjórnar efnahagsmála - og sagði Geir að fyrr færi Samfylkingin úr ríkisstjórn. Það vildi Geir ekki - og Davíð vék af fundi, þungum skrefum.“
Síðasti fundurinn
Hann lýsir svo síðasta fundi hans og Davíðs, þar sem Davíð kom með óvænt tilboð.
„Síðustu samskipti okkar Davíðs voru í Hádegismóum, með löngum og sögulegum aðdraganda. Þau voru dæmigerð en skemmtileg ófyrirleitni af hans hálfu: Hann bauð mér vinnu! Þegar ég hafði náð mér yfir þessari ósvífni áttum við saman merkilegt spjall, þar sem við vorum sammála um að hvor um sig væri í hundslöppum flokki. Þetta var vitaskuld fyrir tíma Kristrúnar,“ segir Össur.
„Þetta var í annað sinn á minni ævi sem Davíð bauð mér starf, og var hafnað um hæl með votti af skyndibræði. Ég held þó að í bæði skiptin hafi undirrótin verið góðvilji fremur en útspekúleruð tilraun til móðgunar, sem þó var ein þeirra lista sem hann kunni líka út í hörgul.“
Sagan lykill að skilningi á samtímanum
Össur bendir á að sagan sé oftast lykill að skilningi á samtímanum.
„Ef menn vilja skilja afhverju Þorsteinn Pálsson yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og gekk til liðs við Viðreisn, sem var á þeim tíma hreinn klofningur úr flokknum, þá eiga þeir að lesa bók þeirra feðga. Og vilji menn kynnast alvöru illúð milli stjórnarflokka geta menn kynnst henni l Davíðsbók þar sem fjallað er um ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknar sem sprakk í beinni útsendingu. Vilji menn kynnast hráslaga og blóðþorsta stjórnmálanna lesa þeir um atlögu Davíðs að Þorsteini Pálssyni,“ segir Össur.
„Sjálfur færðist ég undan að veita þeim feðgum viðtal um Davíð. Sama gilti um miðla sem eftir leituðu. Ég hafði hvorki áhuga á að setja á hann geislabauginnn sem Mogginn og svartstakkar reyna sífellt af sveipa hann né heldur spegla neikvæðu ljósi á nýlátinn, umdeildan stjórnmálamann. Allt hefur sinn tíma. Davíð var þrátt fyrir allt merkur forsætisráðherra í fyrstu ríkisstjórninni sem ég sat í.“
Zhou Enlai og Henry Kissinger árið 1972. Tvennum sögum fer af því hvort Zhou hafi verið að tala um frönsku byltinguna eða stúdentabyltinguna 1968. Mynd/Getty
Hann efast um að bókin sé tímabær nú þegar svo skammt er liðið frá andláti Davíðs.
„Um áhrif hans á samtímasöguna hallast ég helst að svari Sjú en-laí, forsætisráðherra Kína þegar Kissinger spurði hann í Beijing árið 1972 hverjar hann teldi sögulegar afleiðingar frönsku stjórnarbyltingarinnar 1789?“ Svaraði hann því að það væri of snemmt að segja til um það.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗