Bræður verða liðsfélagar
Körfuknattleiksmaðurinn Ingvi Þór Guðmundsson er genginn til liðs við Keflavík frá Ármanni. Félagaskiptin hafa verið skráð hjá Körfuknattleikssambandi Íslands.
Ingvi, sem er 28 ára bakvörður og uppalinn hjá Grindavík, hittir þar fyrir bróður sinn, Braga Guðmundsson. Bragi fór sömu leið frá Ármanni til Keflavíkur síðasta sumar.
Í fimm deildarleikjum með Ármanni á tímabilinu var Ingvi með tólf stig, 3,6 fráköst, 4,2 stoðsendingar og tvo stolna bolta að meðaltali. Hann lék rúmar 27 mínútur í leik.
Keflavík er í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar með átta stig eftir sex leiki. Liðið mætir Tindastóli á morgun.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗