Skattarnir hærri en innflutningsverðið
Í nýrri úttekt Viðskiptaráðs Íslands segir að við skattlagningu ökutækja ætti að horfa til þess að lágmarka efnahagslega röskun hennar. mbl.is/sisi
Skattar á nýjan bensínjeppa eru nú hærri en innflutningsverð bílsins. Há vörugjöld á innflutta bíla leiða til eldri og óöruggari bílaflota og leggjast ójafnt á landsmenn eftir búsetu, enda séu rafbílar óraunhæfur kostur úti á landi.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs Íslands um skattlagningu bifreiða, sem birt er í dag.
Í úttektinni er fjallað um þær breytingar sem voru gerðar á vörugjöldum bifreiða í janúar, en þær urðu til þess að gjöld á innflutta bensínbíla hækkuðu verulega. Vörugjald reiknast af innflutningsverði bíls og leggst virðisaukaskattur síðan á samtölu þeirra.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗