Hyundai á Íslandi lækkar verð á öllum bílum

Hyundai Inster. Ingþór segir Hyundai á Íslandi vilja taka þátt í baráttunni við háa vexti og verðbólgu.

Hyundai á Íslandi hefur lækkað verð á öllum sex bílgerðum umboðsins og nemur lækkunin um á bilinu 3,8-5,7%.

Verðlækkunin er mismikil eftir útbúnaðargerðum en mest nemur hún 5,7% á rafbílnum Inster Limited sem kosinn var rafbíll ársins, World Electric Vehicle of the Year, á síðasta ári.

Vilja taka þátt í baráttunni

Rafbíllinn Hyundai Kona lækkar um 3,3-4,4% eftir gerðum, Ioniq 5 um 3,6-5,6%, Tucson um 3,1-4,8% og Santa Fe um á bilinu 3,6-3,8%.

Í tilkynningu frá umboðinu er haft eftir Ingþóri Ásgeirssyni framkvæmdastjóra að ástæða verðlækkunarinnar sé annars vegar styrking krónunnar, sem nemur um 4% gagnvart evru frá því í lok febrúar.

Hins vegar hafi fyrirtækið viljað taka þátt í baráttu atvinnulífsins við háa stýrivexti og verðbólgu, sem öll þjóðin sé sammála um að ná þurfi niður.

„Háir vextir hafa einnig mikil áhrif á bílverð og þá sérstaklega þegar mikið magn bifreiða er til á lager. Nú er staðan hjá okkur betri en oft áður sem gefur okkur ákveðið tækifæri til verðlækkunar núna,“ segir Ingþór.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅