BL lækkar einnig verð nýrra bíla

BL fylgir fordæmi Hyundai.

BL fylgir fordæmi Hyundai. Ljósmynd/Aðsend

Bílaumboðið BL hefur, eins og Hyundai á Íslandi, lækkað verð á nýjum fólksbílum frá nokkrum bílaframleiðendum og nær lækkunin að auki til sendibíla hjá umboðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu bílaumboðsins. 

Verðlækkanirnar nema frá 300 þúsund krónum upp í 1.500 þúsund krónur en sendibíllinn Renault Master E-Tech lækkar mest allra bíla í verði, frá 11.490.000 þúsund krónum niður í 9.990.000 krónur. 

Meðal annara bíla sem lækka umtalsvert í verði eru MG4 Urban Comfort, Renault 5 Techno, Nissan Leaf Engage og Hongqi EHS5 Premium.

„Við höfum verið að vinna í undirbúningi lækkananna undanfarna daga. Ástæðan er sú sama og Hyundai hefur kynnt, það er styrking krónunnar um 4% frá því í febrúar og vilji fyrirtækisins til að taka þátt í því verkefni að reyna að lækka verðbólgu og þá forsendur fyrir lægri vöxtum í framhaldinu,“ er haft eftir Írisi Ansnes, framkvæmdastjóri fjármála BL, í tilkynningu. 

Renault Master E-Tech lækkar mest allra bíla í verði, frá 11.490.000 þúsund krónum niður í 9.990.000 krónur. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅