Gjaldheimtan langt umfram útgjöldin

Gjaldheimta af bifreiðum var talsvert umfram útgjöld sem fóru í viðhald og nýframkvæmdir á vegakerfinu á árunum 2019-2025. mbl.is/Eggert

Bein gjaldheimta ríkisins af ökutækjum, eldsneyti og akstri hefur verið umfram heildarútgjöld ríkisins til vegasamgangna undanfarin ár samkvæmt nýrri greiningu frá Samtökum iðnaðarins.

Samkvæmt greiningunni námu beinar tekjur ríkisins á árunum 2019-2025 af þessum gjaldstofnum samtals 338 milljörðum króna samanborið við 255 milljarða í heildarútgjöld til vegasamgangna. Tekjur umfram útgjöld námu því 83 milljörðum á tímabilinu.

Bilið farið vaxandi

Gjaldheimta af bifreiðum var talsvert umfram útgjöld sem fóru í viðhald og nýframkvæmdir á vegakerfinu á árunum 2019-2025. Fjármunir ríkisins til viðhalds og nýframkvæmda námu samtals 180,7 milljörðum króna. Fyrir hverjar 100 krónur sem ríkið innheimti með beinum gjöldum af ökutækjum, eldsneyti og akstri fóru um 53 krónur í viðhald og nýframkvæmdir.

„Bilið milli gjaldheimtu og útgjalda hefur farið vaxandi á síðustu árum. Árið 2025 nam bein gjaldheimta um 64,9 milljörðum, samanborið við 43,9 milljarða í heildarútgjöld til vegasamgangna. Mismunurinn var því um 21 milljarður.

Samkvæmt horfum fyrir árið 2026 verður munurinn um 23,1 milljarður. Árið 2027 sker sig sérstaklega úr. Þá er bein gjaldheimta áætluð um 83,9 milljarðar, en heildarútgjöld til vegasamgangna um 50,0 milljarðar. Mismunurinn eykst því í tæplega 34 milljarða,“ segir í greiningu Samtaka Iðnaðarins.

Þar segir enn fremur að samanburðurinn sýni þannig að aukin gjaldheimta leiði ekki sjálfkrafa til aukinna framlaga til vegasamgangna. Þvert á móti benda áætlanir fyrir 2026 og 2027 til þess að bilið milli þess sem ríkið innheimtir og þess sem varið er til málaflokksins muni breikka enn frekar.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅