Ónegldu Continental-dekkin unnu aftur vetrardekkjaprófið

Continental-dekkin báru sigur úr býtum enn á ný.

Continental-dekkin báru sigur úr býtum enn á ný.

Ónegld norræn vetrardekk frá Continental, af gerðinni VikingContact 8, báru sigurorð af öllum keppinautum í nýjasta vetrardekkjaprófi sænska bílablaðsins Teknikens Värld fyrir veturinn 2026-2027 – þar á meðal bestu nagladekkjunum.

Continental-dekkin urðu efst í heildarprófinu þriðja árið í röð.

Athygli vekur að norrænu ónegldu dekkin stóðu sig mjög vel við vetraraðstæður. Þau skipuðu jafnframt fjögur efstu sæti prófsins, en alls voru 18 dekk af þremur gerðum prófuð.

Continental VikingContact 8 fékk hæstu einkunn allra dekkjanna fyrir aksturseiginleika á ís, en á snjó voru bestu ónegldu og negldu dekkin jöfn.

Árangurinn kemur í kjölfar sigurs VikingContact 8 í vetrardekkjaprófi norska NAF og Motor í fyrra. Þar urðu þau efst í flokki ónegldra vetrardekkja og fengu jafnframt bestu einkunn prófsins fyrir grip á ís.

Hér á landi fást Continental-dekkin hjá Dekkjahöllinni.

Ónegld og fyrir norrænar aðstæður

Continental fékk alls 125 stig í prófinu. Goodyear UltraGrip Ice 3 varð í öðru sæti með 119 stig, Pirelli Ice Friction í því þriðja með 114 stig og Nokian Hakkapeliitta R5 í fjórða sæti með 112 stig.

Öll eru þau ónegld norræn vetrardekk, en slík dekk eru yfirleitt með mýkra gúmmíi og mynstri sem leggur meiri áherslu á grip á ís og snjó. Svokölluð mið-evrópsk vetrardekk eru hönnuð meira fyrir blautt og kalt malbik, krapa og mildari vetur.

Vetraraðstæður vógu þyngra

Besta nagladekkið var Pirelli Ice Zero 2, sem fékk 110 stig og hafnaði í fimmta sæti í heildarprófinu. Goodyear UltraGrip Arctic 2 varð næstbest nagladekkja með 107 stig og Michelin X-Ice North 4 þriðja með 104 stig.

Dekkin voru öll af stærðinni 235/45 R18 og voru prófuð á Volvo V60. Prófaðir voru meðal annars aksturs- og hemlunareiginleikar á ís og snjó, akstur á blautu og þurru malbiki, vatnsflot, akstursþægindi og eldsneytisnotkun.

Eiginleikar dekkjanna við vetraraðstæður vógu þyngra í heildareinkunninni en frammistaða þeirra á auðu malbiki.

Í prófinu voru sjö nagladekk, fimm norræn ónegld dekk og sex ónegld mið-evrópsk vetrardekk. Tvö nagladekkjanna voru jafnframt meðal þeirra fyrstu sem eru að fullu hönnuð eftir nýjum reglum um slit nagla sem taka gildi í byrjun næsta árs.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅