Porsche hækkar verð um allt að 20%
Bílaframleiðandinn Porsche ætlar að hækka verð dýrustu bíla sinna um allt að 20% í tilraun til að styrkja stöðu sína á ný en framleiðandinn hefur átt í rekstrarerfiðleikum undanfarið.
Þetta kemur fram í umfjöllun dagblaðsins Telegraph.
Breytingin mun hækka meðalverð dýrustu bíla framleiðandans úr 270.000 evrum í 330.000 evrur, eða úr 37 milljónum íslenskra króna í 45 milljónir króna.
Ætlað að gera bílana eftirsóknarverðari
Michael Leiters forstjóri Porsche segir breytingarnar til þess fallnar að gera bílana eftirsóknarverðari. „Við viljum styrkja stöðu okkar enn frekar, vernda sérstöðu Porsche og ná auknu valdi yfir verðlagningu,“ segir hann jafnframt.
Fyrirhugaðar breytingar bílaframleiðandans koma meðal annars í kjölfar minni eftirspurnar eftir rafbílum en búist var við og mikils samdráttar í hagnaði.
Að auki hefur dregið mikið úr sölu þeirra í Kína og segir Leiters að til standi að draga úr umsvifum þeirra þar í landi. Áður hafi sú sala staðið undir meira en þriðjungi af heildarsölu framleiðandans en nemur nú varla 15%.
内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗