Kia með flestar nýskráningar á árinu

Kia Sportage er mest selda bílaundirtegundin það sem af er ári. Ljósmynd/Kia

Bílamerkið Kia er með flestar nýskráningar á íslenskum fólksbílamarkaði það sem af er ári, samkvæmt nýskráningartölum frá Samgöngustofu. Í næstu sætum listans eru bílamerkin Toyota, Tesla, Hyundai og Dacia. 

Kia var söluhæsta bílamerkið árið 2025.

Heildarmarkaður fólksbíla dregst saman um 1% sé miðað við sama tímabil í fyrra, eða úr 11.940 bílum í 11.820 bíla. 

Níu af hverjum tíu rafvæddir að einhverju leyti

Rafbílar eru tæplega helmingur allra nýskráðra fólksbíla það sem af er ári og nærri níu af hverjum tíu nýskráðum fólksbílum eru rafvæddir að einhverju leyti, það er tvinn-, tengiltvinn- eða rafbíll, sem er aukning frá 78,4% á sama tímabili í fyrra. 

Kia Sportage er mest selda undirtegundin og Tesla Model Y er næstsöluhæsta undirtegundin.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅