Tveggja sæta smart snýr aftur
Nýr smart #2 var heimsfrumsýndur á bílasýningunni í París á dögunum. Nú snýr þessi sígildi bíll aftur í nýrri og alrafmagnaðri útfærslu.
París þótti viðeigandi staður fyrir endurkomuna en þar kom smart fyrst fram á sjónarsviðið árið 1996, þegar bíllinn var sýndur sem listaverk undir Louvre-pýramídanum.
Með smart #2 snýr vörumerkið aftur að rótum sínum og endurvekur bílinn sem hefur frá upphafi verið eitt helsta einkenni smart, eins og segir í tilkynningu frá Öskju.
„Nýr smart #2 er hannaður af hönnunarteymi Mercedes-Benz og sækir skýran innblástur í upprunalega tveggja sæta smart, en í nýrri og nútímalegri mynd. Bíllinn er aðeins 2,75 metrar að lengd og sérstaklega hannaður fyrir akstur í borgarumhverfi,“ segir í tilkynningunni.
Mikið selt af smart #5 á Íslandi
Evrópuútgáfan verði með allt að 290 km drægni samkvæmt WLTP-staðli og styðji hraðhleðslu úr 10 í 80% á um 20 mínútum við kjöraðstæður.
„Bílaumboðið Askja hóf sölu á nýrri kynslóð smart á Íslandi árið 2023 með smart #1. Síðan þá hefur línan stækkað með smart #3 og smart #5 og hefur smart fengið góðar viðtökur hér á landi.“
Þá hafi smart #5 vakið sérstaklega mikla athygli, en bíllinn er sá þriðji mest seldi á Íslandi það sem af er ári.
Nýr smart #2 verður í fyrstu fáanlegur í Evrópu í útfærslunum Pure, Pure+ og Premium, auk sérstakrar Couture útfærslu sem verður framleidd í aðeins 999 eintökum fyrir Evrópumarkað.
Nánari upplýsingar um verð, búnað og framboð verða kynntar síðar.
内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
