Verðþak rafbílastyrkja lækkar í átta milljónir

Í tilkynningunni segir að rafbílastyrkir hafi að mestu runnið til tekjuhærri hópa á undanförnum árum. Með lægra hámarksverði styrkhæfra bíla verði fjármunum beint til hópa sem séu líklegri til að kaupa bíla á lægra verðbili. AFP

Hámarksverð fólksbíla sem geta fengið rafbílastyrk lækkar úr tíu milljónum króna í átta milljónir frá og með 1. nóvember. Jafnframt lækkar styrkur vegna hvers bíls úr 500 þúsund krónum í 400 þúsund krónur.

Þetta kemur fram í tilkynningu umhverfisráðuneytisins. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur undirritað reglugerð sem felur einnig í sér skýrari umgjörð um starfsemi Loftslags- og orkusjóðs og skilvirkara verklag við auglýsingar og úthlutun styrkja úr samkeppnishluta hans.

Áfram verður veittur stuðningur við orkuskipti sendi-, vöru- og hópferðabíla. Þeir styrkir verða eingöngu veittir lögaðilum og einstaklingum í virkum atvinnurekstri.

Styrkir hafa að mestu runnið til tekjuhærri hópa

Í tilkynningunni segir að rafbílastyrkir hafi að mestu runnið til tekjuhærri hópa á undanförnum árum. Með lægra hámarksverði styrkhæfra bíla verði fjármunum beint til hópa sem séu líklegri til að kaupa bíla á lægra verðbili. Jafnframt sé stefnt að því að fjölga slíkum bílum á eftirmarkaði.

Að sögn ráðuneytisins er breytingin í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um réttlát umskipti.

Þá hafi verðþróun rafbíla verið hagstæð undanfarið ár, bæði vegna þróunar á heimsmarkaði og vegna þess að vörugjöld voru afnumin af nýjum rafbílum samhliða öðrum breytingum á gjaldtöku vegna ökutækja 1. janúar 2026. Rafbílar séu því orðnir samkeppnishæfari í innkaupum, auk þess að vera ódýrari í rekstri en bensín- og dísilbílar.

Minni ábati en af mörgum öðrum verkefnum

Samkvæmt tilkynningunni kemur fram í ársskýrslu Loftslags- og orkusjóðs fyrir árið 2025 að ábatinn af beinum styrkjum til kaupa á fólks- og sendibílum sé nú umtalsvert minni en af mörgum öðrum verkefnum sjóðsins. Það sé í samræmi við niðurstöður greininga ráðuneytisins.

Breytingarnar séu gerðar með hliðsjón af þessum breyttu aðstæðum og áherslum ríkisstjórnarinnar á sjálfbæran ríkisrekstur og hagkvæma ráðstöfun opinberra fjármuna. Markmiðið sé að fjármunir sjóðsins nýtist með hagkvæmari hætti og beinist að þeim verkefnum sem skili mestum ávinningi.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅