Frumsýna nýjan Hyundai í Kauptúni í dag

Hyundai Ioniq 3 verður frumsýndur í dag.

Hyundai Ioniq 3 verður frumsýndur í dag.

Nýr Hyundai Ioniq 3 verður frumsýndur hér á landi í dag í sýningarsal Hyundai að Kauptúni 1, Garðabæ. Bíllinn er nýjasta viðbótin við rafbílaframboð Hyundai og verður fáanlegur í fjórum útfærslum með allt að 496 kílómetra drægni.

Verð hefst í 6.650.000 kr. en lækkar í 6.150.000 kr. að teknu tilliti til 500.000 kr. rafbílastyrks Orkusjóðs. Frá 1. nóvember lækkar styrkurinn í 400.000 kr. fyrir rafbíla sem kosta innan við 8 milljónir króna.

Bíllnn verður frumsýndur í dag eins og áður sagði, frá klukkan 11 til 15. Gestum gefst þar tækifæri til að kynna sér bílinn, reynsluaka og spjalla við söluráðgjafa.

Fjórar útfærslur

Í tilkynningu frá Hyundai á Íslandi segir að bíllinn sameini fallega hönnun, nett ytri mál og rúmgott innanrými með 441 lítra farangursrými. Hann er búinn 61 kWh rafhlöðu sem skilar 496 km drægni samkvæmt WLTP-staðli og hægt er að hlaða hann úr 10% í 80% með 115 kW hraðhleðslu á aðeins 29 mínútum.

Hyundai IONIQ 3 er með sjö ára almenna ábyrgð eins og aðrir Hyundai-bílar í dag og átta ára ábyrgð á rafhlöðunni.

Þessi nýi rafbíll er í boði í fjórum útfærslum; Select, Trend, Prime og N-Line, en allar eru þær búnar helstu þægindum sem nútíma ökumaðurinn býst við eins og til dæmis lyklalausu aðgengi, hita í sætum og hita í stýri. 

Ný tækni og öryggi á heimsmælikvarða

Bíllinn er einnig búinn nýju upplýsinga- og afþreyingarkerfi Hyundai sem ber nafnið Pleos Connect en það býður upp á skarpa grafík, leiðsögn, fjölbreytta tengimöguleika og raddstýringu sem nýtir gervigreind.

„Við erum ákaflega spennt fyrir þessari tækninýjung frá Hyundai en þau sem hafa þegar prófað bílinn eru virkilega hrifin,“ er haft eftir Sigurrós Pétursdóttur, sölu- og vörumerkjastjóra Hyundai á Íslandi.

Þá er hann einnig búinn nýjustu öryggis- og akstursaðstoðarkerfum Hyundai.

„Hyundai SmartSense eru háþróuð akstursaðstoðarkerfi sem gerir aksturinn auðveldari, öruggari og afslappaðri með því að greina og vara við hugsanlegum hættum og aðstoða við hemlun og stýringu sé þess þörf,“ segir í tilkynningunni.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅