Vinsælar bílategundir detta af listanum
Ákvörðun stjórnvalda um að lækka hámarksverð rafbíla sem geta fengið styrk úr Orkusjóði úr tíu milljónum í átta, gerir það að verkum að nokkrar bílategundir detta út af lista yfir þá bíla sem fram að þessu hafa notið styrksins.
Breytingarnar taka gildi þann 1. nóvember næstkomandi, en þá verður styrkfjárhæð vegna hvers bíls einnig lækkuð úr 500 þúsund krónum í 400 þúsund. Greint var frá áformunum í vikunni.
Í tilkynningu frá bílaumboðinu BL segir að „skyndiákvörðun“ stjórnvalda hafi áhrif á nokkrar vinsælar bílategundir sem muni ekki lengur njóta styrks úr Orkusjóði. Þar á meðal rafbílana BMW iX1, Hyundai IONIQ 5 Calligraphy og N-Line, Nissan Ariya Evolve og Hongqi EHS7 Exclusive
„Ökumenn, sem nú eru að velta fyrir sér kaupum á rafbíl á verðbilinu 8 til 10 milljóna króna, verða því að rjúka til og ganga frá kaupunum sem fyrst til að hægt sé að sækja um og tryggja styrkinn fyrir næstu mánaðamót,“ segir í tilkynningu frá BL.
Hafa veruleg áhrif á viðskiptavini
Haft er eftir framkvæmdastjóra BMW á Íslandi að ákvörðunin hafi komið talsvert á óvart, enda hafi verið gefin fyrirheit um að fyrri ákvarðanir stjórnvalda, sem sneru að Orkusjóði, fengju að standa lengur.
„Vegna þessarar ákvörðunar stjórnvalda stöndum við hjá BL nú frammi fyrir því að fá til landsins bíla sem voru pantaðir á þeirri forsendu að þeir myndu njóta styrks úr Orkusjóði. Hefðu þessar breytingar legið fyrir þegar pantanir voru gerðar hefðum við mögulega pantað færri bíla.Breytingarnar hafa einnig veruleg áhrif á viðskiptavini okkar sem margir hverjir gerðu ráð fyrir styrknum við pöntun á bíl en eiga nú á hættu að missa af honum vegna nýrra tímamarka,“ er haft eftir Knúti Steini Kárasyni, framkvæmdastjóra BMW á Íslandi.
Í tilkynningunni er einnig haft eftir Ingvari Ásgeirssyni, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi, að ákvarðanir sem þessar geri þeim ómögulegt að setja saman sem raunhæfastar birgðaáætlanir, þar sem ekki sé hægt að treysta á fyrirsjáanleika af hálfu stjórnvalda.
„Í tilfelli Hyundai er veruleikinn sá að frá pöntun til uppskipunar í Reykjavík líða sex mánuðir þannig að svona skyndiákvarðanir valda talsverðum kostnaðarauka, bæði fyrir okkur og viðskiptavini. Það eina sem við getum gert er að gera okkar besta í því að upplýsa viðskiptavini í bílahugleiðingum jafnóðum og stjórnvöld taka skyndiákvörðun sem varðar hagsmuni þeirra og fjárútlát.“
内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗