Að hanna bíl er að hanna heila upplifun

Kris Tomasson við eintak af Firefly, einum af rafbílum NIO.

Kris Tomasson við eintak af Firefly, einum af rafbílum NIO. Ljósmyndir/NIO

Rafbílavæðingin í Kína hefur ekki farið fram hjá neinum hér á Íslandi enda seljast kínverskir rafbílar vel hér á landi. Það vita kannski færri að Íslendingar eiga þar fulltrúa í fremstu röð en Kris Tomasson er yfirhönnuður hjá NIO, einum framsæknasta rafbílaframleiðanda Kína.

Kris er sonur Helga Tómassonar, fyrrverandi stjórnanda ballettsins í San Francisco, og ólst því upp á listrænu heimili.

„Ég kem úr mjög skapandi fjölskyldu og var alltaf skapandi sem barn,“ segir Kris. „Ég teiknaði tímunum saman og smíðaði hluti – bíla, hús, vörur. Síðan fékk ég mína fyrstu verklegu reynslu af hönnun á Íslandi. Frændi minn (Guðjón Ingi Hauksson, sem er sammæðra Helga Tómassyni) er grafískur hönnuður og ég vann líka eitt sumar á arkitektastofu. Það varð til þess að ég hélt í fyrstu að ég vildi verða arkitekt. Ég hóf því nám í arkitektúr. Eftir um það bil ár uppgötvaði ég hins vegar vöruhönnun – bókstaflega hinum megin við ganginn – og áttaði mig fljótt á því að sá heimur hentaði mér mun betur. Það urðu svo straumhvörf þegar ég komst að því að hægt væri að sérhæfa sig í bílahönnun. Fram að því hafði ég ekki einu sinni gert mér grein fyrir því að bílahönnun væri sjálfstæð starfsgrein. Að lokum fór ég í ArtCenter College of Design í Pasadena, einn virtasta skóla heims á sviði samgönguhönnunar. Ég útskrifaðist þaðan og hóf feril minn sem hönnuður.“

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅