Volvo tilkynnir niðurskurð um 2.500 störf

Árið 2024 féll Volvo Cars frá áætlun um að selja eingöngu rafbíla fyrir lok áratugarins. AFP

Sænski bílaframleiðandinn Volvo Cars greindi frá því í dag að fyrirtækið hygðist fækka störfum um 2.500 á heimsvísu, en bandarískir tollar og hörð samkeppni frá innlendum vörumerkjum í Kína ollu tapi á þriðja ársfjórðungi.

Fyrirtækið, sem er í eigu kínversku samsteypunnar Geely, greindi frá tekjum upp á 66,9 milljarða sænskra króna (6,7 milljarða bandaríkjadala) á þriðja ársfjórðungi, sem er tæplega 23 prósenta samdráttur frá sama tímabili í fyrra.

Hreint tap nam 5,7 milljörðum sænskra króna á fjórðungnum, samanborið við 4,5 milljarða króna hagnað ári áður.

Störfum í mjög erfiðu umhverfi

„Við störfum áfram í mjög erfiðu umhverfi þar sem ytri áskoranir eru miklar: afhnattvæðing, ofursamkeppni og loftslagsbreytingar,“ sagði Håkan Samuelsson forstjóri í yfirlýsingu.

Til að bregðast við þessu kynnti fyrirtækið nýja sparnaðaráætlun upp á fimm milljarða sænskra króna sem það sagði að myndi leiða til fækkunar um 2.000 starfa í Svíþjóð og 500 til viðbótar á heimsvísu, „með náttúrulegri starfsmannaveltu og markvissum starfslokasamningum við starfsfólk“.

Fyrirtækið, sem hafði veðjað mjög á rafbíla, sagði að afnám ívilnana til neytenda vegna rafbílakaupa í Bandaríkjunum í forsetatíð Donalds Trump hefði einnig bitnað á framlegð þess.

Árið 2024 féll Volvo Cars frá áætlun um að selja eingöngu rafbíla fyrir lok áratugarins.

Volvo Cars, sem hefur átt í erfiðleikum líkt og aðrir evrópskir bílaframleiðendur vegna erfiðra aðstæðna á heimsvísu, kynnti í fyrra sparnaðaráætlun upp á 18 milljarða sænskra króna.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅