Thomas nýr forstöðumaður Véltinda

Thomas Már Gregers hefur um 24 ára reynslu úr bílaiðnaðinum.

Thomas Már Gregers hefur um 24 ára reynslu úr bílaiðnaðinum. Ljósmynd/Aðsend

Thomas Már Gregers hefur verið ráðinn forstöðumaður Véltinda. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Véltindar eru meðal annars umboðsaðilar Iveco-atvinnubíla og hópferðabíla frá King Long og VDL.

24 ára reynsla úr bílaiðnaði

Í tilkynningunni kemur fram að Thomas sé með Executive MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, hafi um 24 ára reynslu úr bílaiðnaðinum og hafi sinnt fjölbreyttum verkefnum á sviði sölu, rekstrar og stjórnunar.

Þá kemur fram að hann hafi starfað meðal annars sem sölustjóri hjá BL, þar sem hann stýrði stærsta sölusviði fyrirtækisins, sem náði yfir níu vörumerki.

Að auki kemur fram að hann hafi leitt uppbyggingu og þróun Porsche á Íslandi og veitt því forstöðu um árabil ásamt samskiptum við alþjóðlega samstarfsaðila.

Mikil tækifæri

„Ég sé mikil tækifæri til að efla stöðu þessara vörumerkja á íslenskum markaði og byggja áfram á þeim grunni sem þegar hefur verið lagður,“ er haft eftir Thomasi í tilkynningunni.

Hann segist jafnframt ætla að leggja áherslu á að þróa framboð Véltinda í takt við þarfir viðskiptavina, efla viðskiptasambönd og veita trausta og persónulega þjónustu.

„Viðskiptavinir okkar þurfa ökutæki sem henta þeirra verkefnum og rekstri. Okkar hlutverk er að skilja þær þarfir og aðstoða þá við að velja réttu lausnirnar. Ég hlakka til að vinna með starfsfólki Véltinda að áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins.“ 

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅