Þrír bræður fengu bíla númer 999, 1000 og 1001
Frá afhendingu bZ4X númer 999, 1000 og 1001. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Óskar Halldórsson, sölustjóri Toyota Kauptúni, Helgi Loftsson, Fannar Logi Bragason, söludeild nýrra bíla, Haukur Loftsson, Jóhann Loftsson og Kristinn J. Einarsson, sölustjóri nýrra bíla. Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Þúsundasti bZ4X-rafbíllinn frá Toyota var afhentur hér á landi í síðustu viku.
Svo skemmtilega vill til að þrír bræður sem ákváðu allir fyrir stuttu að kaupa sér bZ4X fengu afhenta bíla númer 999, 1000 og 1001 í röðinni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Toyota, þar sem segir að bíllinn hafi fengið góðar viðtökur hér á landi, enda henti hann íslenskum aðstæðum vel og falli vel að þörfum íslenskra bílstjóra og fjölskyldna þeirra.
Bræðurnir Jóhann, Haukur og Helgi Loftssynir eru af sannkallaðri Toyotafjölskyldu því allir hafa þeir átt Toyotur frá því snemma á níunda áratugnum eða í samtals meira en 125 ár.
Þeir segja að Toyoturnar sem þeir hafi átt séu nálægt 100 samtals enda allir miklir bílaáhugamenn. Nú sé komið að því að skipta yfir í rafmagnsbíl frá Toyota og segjast bræðurnir spenntir að prófa rafmagnið eftir að hafa prófað allt annað; bensín- dísil- og hybridbíla.
Tvær stærðir
Bíllinn fæst bæði framhjóladrifinn og fjórhjóladrifinn.
„Fjórhjóladrifna útfærslan er búin öflugu X-MODE drifkerfi sem gerir akstur í snjó, hálku og öðrum krefjandi aðstæðum sérstaklega öruggan. Tvær stærðir eru í boði, annars vegar bZ4X og hins vegar bZ4X Touring sem bættist við línuna fyrr á þessu ári og býður upp á enn meiri kraft, aukið farangursrými og meira notagildi fyrir fjölskyldur og þá sem stunda útivist,“ segir í tilkynningu Toyota á Íslandi.
„Bíllinn hefur verið rómaður fyrir góða aksturseiginleika, ríkulegan staðalbúnað, hátt öryggisstig og áreiðanleika sem einkennt hefur Toyota um árabil. Afhending bíls númer 1.000 markar því mikilvægan áfanga í sögu Toyota á Íslandi og undirstrikar sterka stöðu bZ4X á íslenskum bílamarkaði.“
内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗