Einhver mesta eftirspurn sem BMW hefur séð á landinu

Frá frumsýningu iX3.

Frá frumsýningu iX3. Ljósmynd/Aðsend

BMW Group afhenti meira en 1,7 milljónir ökutækja á heimsvísu frá áramótum til loka september. Í söluárangrinum gegnir hin nýja kynslóð BMW, „Neue Klasse“, burðarhlutverki.

Einkum er það nýi rafknúni jepplingurinn BMW iX3 sem kemur þar sterkur inn.

Bíllinn var frumsýndur seint á síðasta ári í München og kom formlega á markað í mars. Á sex mánuðum hafa yfir 100 þúsund eintök verið afhent á meginlandi Evrópu.

Hér á landi hefur bíllinn einnig notið vinsælda.

Rúmlega 100 manns hér á landi hafa fengið afhentan iX3 frá lokum apríl og bíða margir eftir að fá sinn bíl afhentan, að því er haft er eftir Ómari Magnússyni, söluráðgjafa hjá BMW á Íslandi, í tilkynningu.

„Þetta er einhver mesta eftirspurn eftir ákveðnum bíl frá BMW sem við höfum séð og það sama virðist eiga við annars staðar í Evrópu,“ segir Ómar, sem getur þess jafnframt að vegna eftirspurnarinnar hafi þeim tekist að tryggja sér aukna hlutdeild af framleiðslunni á iX3 hjá framleiðandanum sem nú er væntanleg til landsins.

„Við höfum tryggt okkur ágætan fjölda bíla umfram upphaflegar áætlanir og margir þeirra eru nú þegar fráteknir.“

Bíllinn hitt í mark

Að sögn talsmanna BMW Group hefur fyrirtækið aldrei áður staðið frammi fyrir jafn mikilli eftirspurn eftir tiltekinni nýrri gerð BMW og þeirri sem iX3 er að sýna á mörkuðunum núna.

„Áhuginn á iX3 hefur ekki farið fram hjá okkur. Það er greinilegt að hann hefur algerlega hitt í mark,“ er haft eftir Ómari.

Þrátt fyrir skamman tíma á markaði hefur iX3 hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal sem Heimsbíll ársins 2026 og Rafbíll ársins í heiminum 2026. Þá var hann kjörinn Bíll ársins 2026 hjá TopGear og World Car auk þess sem hann hefur víða verið kjörinn „Bíll ársins“ í einstökum löndum.

„Við finnum skýrt fyrir þeirri miklu eftirvæntingu sem ríkir í kringum þennan nýja kafla í rafbílaþróun BMW, og það er virkilega spennandi að upplifa þetta með viðskiptavinum okkar hér heima,“ segir Ómar.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅