Ísband blæs til bílasýningar á morgun

RAM 1500 RHO á ferðinni.

RAM 1500 RHO á ferðinni. Ljósmynd/Aðsend

Ísband býður til glæsilegrar bílasýningar í sýningarsal sínum að Þverholti 6 í Mosfellsbæ á morgun, laugardaginn 31. október, kl. 12-16.

Þar verður ný RAM 1500-pallbílalína frumsýnd, kynnt verður forsala á Jeep Wrangler Rubicon X og Wrangler Moab 392 og Leapmotor-fjölskyldan verður til sýnis.

RAM 1500

Ný RAM 1500 lína verður frumsýnd á sýningunni.

Um hana segir í tilkynningu að nútímaleg hönnun að utan sem innan gefi bílunum djarft og kraftmikið yfirbragð. Öflugar sex strokka bensínvélar skila allt að 540 hestöflum og eru tengdar átta þrepa sjálfskiptingu. Tvær útfærslur verða til sýnis: RAM 1500 Rebel og RAM 1500 RHO.

RAM Rebel

RAM 1500 Rebel þykir sameina torfærugetu og þægindi.

„4Link-loftpúðafjöðrun stuðlar að mjúkum akstri við fjölbreyttar aðstæður. Rebel skilar 420 hestöflum og 635 Nm togi. Meðal búnaðar eru E-locker 100% driflæsing, Sport Performance-vélarhlíf, 33 tommu jeppadekk, breiðari brettakantar og RAM Box-geymsluhólf,“ segir í tilkynningu.

RAM 1500 RHO

„RAM 1500 RHO er sannkallað orkubúnt, hannaður til að takast á við krefjandi og illfæra vegslóða. RHO skilar 540 hestöflum og 706 Nm togi. Meðal búnaðar eru E-locker 100% driflæsing, Bilstein Black Hawk e2 demparakerfi og launch control. Bíllinn kemur upphækkaður á 35 tommu jeppadekkjum og með útvíðum brettum.“

Forsala hafin

Jeep Wrangler er nú fáanlegur í forsölu í tveimur spennandi og kraftmiklum útfærslum: Rubicon X og Moab 392.

„Jeep Wrangler Rubicon X kemur nú á 35" 17×8 felgum og háir brettakantarnir gera það að verkum að 37" dekk passa líka beint undir. Öflug V6 3,6 lítra bensínvél, 100% driflæsingar að framan og að aftan, dráttarbeisli með meiri dráttargetu (800 kg meira en 4xe) eru á meðal staðalbúnaðar.

Jeep Wrangler Moab er sannkallað tryllitæki. Hann er búinn 470 hestafla V8 SRT HEMI-bensínvél og átta þrepa sjálfskiptingu með skiptiflipum í stýri. Hröðunin úr kyrrstöðu í 100 km/klst. tekur aðeins 4,5 sekúndur. Bíllinn kemur á 35 tommu dekkjum og með háum brettaköntum sem veita rými fyrir 37 tommu dekk.“

Leapmotor

Leapmotor-fjölskyldan verður einnig til sýnis.

„Bílarnir hafa fengið einstakar móttökur hjá íslenskum bílakaupendum og sameina vandaða smíði og frábært verð. Úrvalið spannar fjölbreyttar þarfir,“ segir í tilkynningunni, áður en úrvalið er reifað:

T03 – ódýrasti rafbíllinn á markaðnum.
B03X – rúmgóður og hagnýtur jepplingur.
B05 – sportlegur og sprækur hlaðbakur.
B10 – rúmgóður fjölskyldubíll.
C10 – flaggskip fjölskyldunnar, kraftmikill fjórhjóladrifinn rafjeppi með ríkulegum lúxusbúnaði.

内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅