Lækka verð á nýjum bílum
Bílabúð Benna hefur lækkað verð á bílum sínum um allt að 1,5 milljón króna. Verðlækkanirnar hafa þegar tekið gildi.
Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðarinnar, segir í samtali við mbl.is að lækkunin komi til vegna styrkingar á íslensku krónunni en einnig sé lækkunin framlag til baráttunnar gegn verðbólgu.
Lækkunin nær til nýrra KGM- og Porsche-bifreiða en til að mynda lækkar verð á rafknúnum Porsche Cayennne úr 16.950.000 í 15.950.000 og verð á 7 manna KGM Rexton Ultimate úr 13.990.000 í 12.990.000.
Verðlækkanir gætu haldið áfram
Benedikt hvetur fleiri aðila til þess að fylgja fordæminu og lækka verð til samræmis við styrkingu krónunnar.
„Menn eru alltaf tilbúnir að hækka þegar gengið fer í hina áttina en það er mikil tregða að lækka verðið þegar krónan styrkist. Ég sá að stórmarkaðirnir frystu verð sem mér fannst voðalega skrýtið, af hverju frysta menn verðið þegar gengið er búið að lækka um 5 til 7 prósent? Af hverju lækka menn ekki?“ segir Benedikt.
Sambærileg lækkun var gerð á verði Bílabúðar Benna í fyrra en Benedikt segir sjálfsagt að skila styrkingu á gengi að fullu til kaupenda.
„Það segir sig sjálft, það veitir ekki af í ástandinu eins og það er núna. Ef að styrking krónunnar heldur áfram þá heldur verðið áfram að lækka.“
Segir verðið ótrúlega flott
Segir Benedikt verð á bílunum vera ansi góð núna þegar lækkunin hefur tekið gildi og nefnir fyrrnefndan Porsche Cayenne sem dæmi.
„Hann er með drægni innanbæjar upp á 808 kílómetra í WLTP, sem er alltaf svona 15-30% frá hér á Íslandi. Hann er gríðarlega vel búinn, það er soft close í honum, það er loftpúðafjöðrun, það er allt í honum nánast. Hann dregur 3,5 tonn, það er enginn rafmagnsbíll sem dregur eins mikið. Hann kostar í dag 15.950.000, það er ótrúlega flott verð.“
内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗