ASÍ: Hlutur olíufélaga aukist um 16 krónur á lítra
Sambandið segir hækkanir á eldsneytisverði því ekki eingöngu skýrast af skattabreytingum og hærra innkaupsverði heldur einnig aukinni álagningu olíufélaganna. Ljósmynd/Colourbox
Hlutur olíufélaga í verði hvers selds eldsneytislítra hefur aukist um 16 krónur frá lokum ágúst, samkvæmt útreikningum Alþýðusambands Íslands.
Sambandið segir hækkanir á eldsneytisverði því ekki eingöngu skýrast af skattabreytingum og hærra innkaupsverði heldur einnig aukinni álagningu olíufélaganna.
Þetta kemur fram í umfjöllun ASÍ um nýjar verðbólgutölur. Útreikningar sambandsins á breytingu á hlut olíufélaganna miðast við meðaltal lægstu verða.
Verðhækkanir á eldsneyti vógu þyngst í hækkun vísitölu neysluverðs í október. Áhrif þeirra námu 0,27 prósentustigum af 0,44% hækkun vísitölunnar, eða meira en helmingi hennar.
Miklar hækkanir tvo mánuði í röð
Verð á dísilolíu hækkaði um 11,2% milli mánaða í október og bensínverð um 8%. Í september hafði verð á dísilolíu hækkað um 18,1% og bensínverð um 16,1%.
ASÍ nefnir þrjár meginskýringar á hækkunum síðustu mánaða. Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hafi gengið til baka í byrjun september, heimsmarkaðsverð hafi hækkað og hlutur olíufélaga í verði hvers lítra aukist.
Lækkun virðisaukaskatts tók gildi 1. maí og fólst í því að eldsneyti var fært í neðra skattþrepið. Samkvæmt ASÍ komu áhrif þess að lækkunin gekk til baka hratt fram í byrjun september, þegar öll olíufélögin hækkuðu verð í fyrstu vikunni.
Heimsmarkaðsverð á bensíni hækkaði um tæp 10% frá ágústlokum til byrjunar október. Sú hækkun gekk þó að hluta til baka í október, að sögn ASÍ.
Segja hlut olíufélaganna háan í sögulegu samhengi
ASÍ hefur áður fjallað um þróun eldsneytisverðs í tengslum við innleiðingu kílómetragjalds og niðurfellingu vörugjalda á eldsneyti um síðustu áramót.
Sambandið taldi þá að niðurfelling vörugjaldanna hefði skilað sér í lægra eldsneytisverði. Það benti þó jafnframt á að hlutur olíufélaganna í verði hvers selds lítra hefði aukist á undanförnum árum og væri hár í sögulegu samhengi.
内容来自 Mbl.is - Bílar,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗