Fyrsti sigur Arsenal á Anfield í fjórtán ár

Arsenal vann 1:0-útisigur á Liverpool á Anfield í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þetta er fyrsti sigur Arsenal á Anfield í fjórtán ár, eða síðan liðið vann 2:0-sigur árið 2012.

Arsenal er komið á topp deildarinnar með 24 stig. Liverpool er í fimmta sæti með 15 stig.

Mikil stöðubarátta var í upphafi leiks. Arsenal náði að nýta sitt fyrsta færi þegar liðið komst yfir á 16. mínútu. Arsenal vann boltann framarlega eftir misheppnaða markspyrnu Liverpool. 

Noni Madueke fékk boltann og fann Declan Rice sem kom aðvífandi. Rice sendi þéttingsfast fyrir markið þar sem Þjóðverjinn Kai Havertz var mættur á réttan stað og kom boltanum í netið.

Liverpool tók völdin á vellinum fljótlega eftir markið. Bradley Barcola átti stórhættulega fyrigjöf sem Alexander Isak rétt missti af og boltinn sigldi framhjá markinu. Jurrien Timber togaði í treyju Isak og því hefðu heimamenn mögulega átt að fá vítaspyrnu. 

Florian Wirtz var hásbreidd frá því að jafna metin á 39, mínútu þegar aukaspyrna hans flaug yfir David Raya og small í þverslánni. 

Alexis MacAllister fékk svo besta færi Liverpool í fyrri hálfleik fjórum mínútum síðar. Milos Kerkez sendi fyrir á Argentínumanninn sem var óvaldaður en náði ekki að halda skalla sínum niðri.

Gestirnir fóru því með eins marks forystu inn í leikhléið. 

Lítið um færi í síðari hálfleik

Síðari hálfleikurinn fór rólega af stað. Arsenal liðið var þétt og varðist vel og heimamenn leituðu að opnunum.

Gestirnir náðu að hægja á leiknum og gekk einnig örlítið betur að halda boltanum. 

Alexander Isak fékk ágætis tækifæri til að jafna á 56. mínútu þegar hann slapp innfyrir vörnina en skot hans var ekki nógu hnitmiðað og fór yfir markið. 

Heimamönnum gekk afar illa að skapa sér færi í síðari hálfleik. Liverpool fékk vissulega talsvert af ágætis stöðum en varnarmúr Arsenal var þéttur og gestunum tókst að kæfa leikinn og sigla eins marks sigri heim.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅