Stórsigur Vals í Garðabæ

Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Val.

Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Val. mbl.is/Ólafur Árdal

Íslandsmeistarar Vals unnu stórsigur á Stjörnunni, 34:25, í sjöundu umferð úrvalsdeildar kvenna í handbolta í Garðabænum í kvöld. 

Valur er kominn í annað sætið með tíu stig eftir sigurinn en Stjarnan er í tíunda og neðsta sæti með tvö. 

Valskonur voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 16:11, og juku forskot sitt í þeim seinni. 

Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir og Ásdís Þóra Ágústsdóttir skoruðu sjö mörk hvor fyrir Val en hjá Stjörnunni skoraði Inga Maria Roysdóttir heil 13 mörk. 

Mörk Stjörnunnar: Inga Maria Roysdóttir 13, Sara Rún Gísladóttir 3, Erla Sif Leósdóttir 3, Vigdís Arna Hjartardóttir 2, Valgerður Elín Snorradóttir 1, Dora Pajic 1, Sunna Katrín Hreinsdóttir 1, Fruzina Nagy 1.

Varin skot: Margrét Einarsdóttir 6 (23%), Sara Schröder Winde 4 (22%).

Mörk Vals: Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 7, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 7, Katla María Magnúsdóttir 6, Elísa Elíasdóttir 4, Laufey Helga Óskarsdóttir 3, Guðrún Hekla Traustadóttir 2, Sara Lind Fróðadóttir 2, Arna Karitas Eiríksdóttir 1, Auður Ester Gestsdóttir 1, Britney Emilie Florianne Cots 1.

Varin skot: Hafdís Renötudóttir 10 (40%), Ísabella Schöbel Björnsdóttir 4 (29%).

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅