Mikilvægur útisigur Akureyrarliðsins
KA/Þór vann mikilvægan sigur á HK, 27:24, í sjöundu umferð úrvalsdeildar kvenna í handbolta í Kórnum í Kópavogi í kvöld.
KA/Þór er nú með fjögur stig í áttunda sæti deildarinnar en HK er í níunda sæti með tvö.
Staðan í hálfleik var jöfn, 11:11, og var jafnræði á milli liðanna alveg þar til á síðustu mínútum leiksins þegar Akureyrarliðið náði góðri forystu og hélt henni út.
Lydía Gunnþórsdóttir og Sólveig Lára Kristjánsdóttir skoruðu sjö mörk hvor fyrir KA/Þór en Tinna Dröfn Hauksdóttir og Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir skoruðu fimm mörk hvor fyrir HK.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗