Samningslaus eftir EM: Þarf ekki að sanna eitt eða neitt
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, verður samningslaus hjá HSÍ eftir EM sem hefst í byrjun desember. Eyjamaðurinn vill halda áfram með íslenska liðið en finnur ekki fyrir meiri pressu fyrir komandi mót.
„Ég hugsa það ekki þannig. Ég á í viðræðum við HSÍ um áframhald og ég horfi yfirleitt alltaf bara á einn leik í einu og reyni að fá eins mikið út úr honum og hægt er, hverri æfingu fyrir sig, hverjum degi fyrir sig, og ég mun gera það áfram.
Ég lít ekki á það þannig að ég þurfi að sanna eitt eða neitt á þessu móti til þess að fá áframhaldandi samning eða ekki. Það verður tíminn að leiða í ljós,“ sagði Arnar og hélt áfram:
„Ég hef mjög gaman að þessu. Mér finnst hópurinn líka ótrúlega spennandi og skemmtilegur. Ég finn að það er hungur í hópnum, í starfsfólkinu í kringum þetta og nánasta umhverfi. Það er gaman að vera í slíku umhverfi,“ sagði Arnar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗