Skoraði 12 mörk í öruggum sigri
Landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir átti stórkostlegan leik með Sävehof í 32:18-sigri liðsins gegn Kristianstad í sænsku úrvalsdeild kvenna í handbolta í dag.
Sävehof er á toppi deildarinnar með átta stig eftir fimm leiki. Kristianstad er í 11. sæti án sigurs.
Elín Klara var markahæst í leiknum en hún gerði sér lítið fyrir og skoraði 12 mörk.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗