Sterkur endurkomusigur ÍBV
Eyjakonur unnu sterkan 26:24-sigur gegn Gróttu í úrvalsdeild kvenna í handbolta á Seltjarnarnesi í dag.
Með sigrinum fer ÍBV upp í annað sætið með 12 stig eftir sjö leiki. Grótta er með fjögur stig í sjöunda sæti.
Grótta byrjaði viðureignina betur og var með tveggja marka forystu í hálfleik, 14:12. Heimakonur héldu uppteknum hætti í upphafi síðari hálfleiks og stækkuðu forskotið í fimm mörk, 17:12.
Í kjölfarið tók við góður kafli ÍBV sem náði forystunni um miðbik seinni hálfleiks, 20:19. Eftir spennandi lokamínútur höfðu Eyjakonur betur, 26:24.
Ásdís Halla Hjarðar var markahæst í leiknum en hún skoraði sjö mörk fyrir ÍBV. Í liði Gróttu var Arnbjörg Bertha markahæst með fimm mörk.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗