Valsmenn unnu í 77 marka leik
Valur vann Aftureldingu 40:37 í úrvalsdeild karla í handbolta í dag. Valur er í 2. sæti deildarinnar með 14 stig en Afturelding situr í 4. sæti með 11.
Leikurinn var í járnum allt frá upphafi og liðin skoruðu grimmt. Valur var einu marki yfir í hálfleik 19:18.
Valsmenn voru með undirtökin allan síðari hálfleik og komust mest fimm mörkum yfir 39:34 þegar fjórar mínútur voru eftir.
Gestirnir löguðu stöðuna undir lok leiksins en Arnór Snær Óskarsson skoraði á lokasekúndum og þriggja marka sigur Vals því staðreynd.
Gunnar Róbertsson átti enn einn stórleikinn í liði Vals og var langmarkahæstur með 14 mörk. Færeyingarnir Allan Norðberg og Bjarni í Selvindi áttu einnig góðan leik, Allan skoraði 9 mörk og Bjarni 7.
Björgvin Páll Gústavsson var traustur í marki Vals, varði 13 skot og var með 26% markvörslu.
Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur gestanna með 6 mörk og Leó Halldórsson og Þorvaldur Tryggvason skoruðu 5.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
