Erlingur enn með 100 % sigurhlutfall

Erlingur Birgir Richardsson hefur farið frábærlega af stað hjá Minden í Þýskalandi. mbl.is/Anton Brink

Erlingur Birgir Richardsson og lærisveinar hans í Minden eru á miklu skriði í þýsku B-deildinni í handbolta.

Minden vann Ferndorf 27:20 á heimavelli í dag en þetta var fimmti sigur liðsins í röð. 

Minden hafði aðeins unnið einn leik, gert eitt jafntefli og tapað þremur áður en Erlingur tók við þjálfun liðsins í lok september en fyrsti leikur hans við stjórnvölinn var 4. október. 

Minden er nú komið upp í 6. sæti deildarinnar með 13 stig, fimm stigum frá toppliði Elbflorenz.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅