Freyr frábær í stórsigri Hauka

Sigurður Jefferson Guarino línumaður Hauka í miklum slag við varnarmenn KA Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Haukar unnu öflugan sigur á KA 36:27 í 9. umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í kvöld. Haukar eru sem fyrr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, 18 stig. KA er í þriðja sæti með 12.

Haukar byrjuðu leikinn sterkt og skoruðu fyrstu þrjú mörkin í leiknum á Akureyri. Hafnfirðingar héldu frumkvæðinu í leiknum og komust mest sjö mörkum yfir í fyrri hálfleik 19:12 en þannig var staðan í hálfleik.

Sigur Hauka var aldrei í hættu í síðari hálfleik. 

Freyr Aronsson átti frábæran leik í liði Hauka en hann skoraði 14 mörk úr 17 skotum. Össur Haraldsson kom næstur með níu mörk. 

Reynsluboltinn Aron Rafn Eðvarðsson varði einni vel í marki Hauka, en hann varði 14 skot og var með 38% markvörslu.

Aron Rafn Eðvarsson varði fjórtán skot í kvöld.

Aron Rafn Eðvarsson varði fjórtán skot í kvöld. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Dagur Árni Heimisson var atkvæðamestur í liði heimamanna en hann skoraði 10 mörk. Dagur Gautason kom næstur með 5 og Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði fjögur úr níu skotum.

Ágúst Elí Björgvinsson varði 10 skot í marki KA og var með 22% markvörslu. 

Jens Bragi Bergþórsson fer inn af línunni í kvöld.

Jens Bragi Bergþórsson fer inn af línunni í kvöld. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Úr leiknum í kvöld.

Úr leiknum í kvöld. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅