Skoraði átta í miklum markaleik
Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk í stórsigri Kadetten á B-deildarliði Emmen í svissnesku bikarkeppninni í handbolta í kvöld.
Kadetten vann leikinn með ellefu marka mun 45:34 og er komið áfram í átta liða úrslit.
Hornamaðurinn skoraði átta mörk úr tólf skotum sem þýðir að skotnýting hans var 66%. Óðinn skoraði eitt mark úr vítakasti en hitt vítakast hans fór forgörðum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/63/2/1630232.jpg)