Ómar og Gísli fóru fyrir sigri Magdeburgar
Magdeburg vann Lemgo 31:28 í þýsku 1.deildinni í handbolta í kvöld. Magdeburg er í öðru sæti deildarinnar en á leik til góða á topplið Kiel.
Ómar Ingi var markahæsti maður vallarins með ellefu mörk en þrjú marka hans komu úr vítaköstum. Hann gaf auk þessa eina stoðsendingu.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sjö mörk, öll úr gegnumbrotum, og gaf þrjár stoðsendingar.
Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað í leiknum í kvöld.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗