Umstangið töluvert meira en þær eru vanar

Arnar Pétursson

Arnar Pétursson mbl.is/Karítas

Sara Dögg Hjaltadóttir og Sonja Lind Sigsteinsdóttir eru á leiðinni á sitt fyrsta stórmót með íslenska landsliðinu í handbolta. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari valdi í gær 17 manna hóp fyrir EM sem hefst í byrjun desember. Aðrir leikmenn liðsins hafa áður farið á stórmót.

„Það er náttúrulega frábært að við séum að fá inn stelpur á sitt fyrsta stórmót og það er mikil reynsla fyrir þær. Það er enn jákvæðara að allar hinar séu þá með einhvers konar stórmótareynslu á bakinu, sem er aðeins öðruvísi en var í fyrra þegar við fórum á mótið eftir miklar breytingar.

Þessar stelpur sem eru að koma inn þurfa að læra að umstangið í kringum þetta er töluvert meira heldur en í þessum deildarleikjum heima sem þær eru vanar. Þær þurfa að koma sér inn í þá rútínu hratt og örugglega, sem ég veit að þær gera.

En svo þurfa þær líka bara að njóta þess að fá að taka þátt í svona verkefni. Þetta er það sem við stefnum á að gera árlega og vinnum að. Þær eiga að njóta þess líka að koma inn í þetta og vera þarna,“ sagði Arnar við mbl.is.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅