Sem betur fer líkist hún mömmu sinni meira
Lilja Ágústsdóttir er á leiðinni á sitt annað stórmót með íslenska landsliðinu í handbolta í byrjun desember en hún hefur verið óheppin með meiðsli í kringum stórmót undanfarin ár.
Það er mjög gott að fá Lilju aftur inn í hópinn. Hún er góð í hóp, góð í handbolta og hefur ákveðið, ef ég má sletta, attitude sem ég fíla og er gott að hafa,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari við mbl.is.
En fær hún það frá pabba sínum, handboltaþjálfaranum Ágústi Jóhannssyni?
„Að einhverju leyti, en sem betur fer líkist hún mömmu sinni meira og ég þakka fyrir það líka,“ sagði Arnar léttur. Ágúst var áður aðstoðarþjálfari Arnars hjá landsliðinu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/84/1688470.jpg)