Eyjamenn tóku yfir í seinni hálfleik
ÍBV vann heimasigur á Stjörnunni, 31:26, í níundu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í Vestmannaeyjum í dag.
ÍBV er í sjötta sæti deildarinnar með tíu stig eftir sigurinn en Stjarnan er í níunda sæti með fimm stig.
Stjarnan var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 18:16, en Eyjamenn voru mun betri í seinni hálfleik og snéru leiknum sér í vil.
Atli Steinn Arnarson fór á kostum í liði ÍBV og skoraði 14 mörk en Ísak Logi Einarsson skoraði tólf mörk fyrir Stjörnuna.
Mörk ÍBV: Atli Steinn Arnarson 14, Magnús Dagur Jónatansson 5, Kristófer Ísak Bárðarson 4, Sveinn José Rivera 4, Heimir Halldór Sigurjónsson 2, Jason Stefánsson 1, Andri Magnússon 1.
Varin skot: Sigurmundur Gísli Unnarsson 5 (24%), Petar Jokanovic 2 (17%), Morgan Goði Garner 1 (100%).
Mörk Stjörnunnar: Ísak Logi Einarsson 12, Jóel Bernburg 5, Tandri Már Konráðsson 3, Matthías Dagur Þorsteinsson 2, Jóhannes Bjorgvin 1, Dagur Sverrir Kristjánsson 1, Gauti Gunnarsson 1, Tóki Friðriksson 1.
Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 11 (26%).
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗