Sterkur útisigur Víkings

Elvar Otri Hjálmarsson úr Víkingi sækir að vörn Fram í leiknum. mbl.is/Anton Brink

Víkingur vann Fram 36:28 í níundu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í Úlfarsárdal í kvöld. Með sigrinum jafnaði Víkingur Fram að stigum en bæði lið eru með sex stig líkt og Þór í 7-9. sæti.

Leikurinn var mjög jafn í fyrri hálfleik. Víkingar komust þremur mörkum yfir 11:8 um miðbik hálfleiksins en Fram var komið yfir 14:13 skömmu síðar. Heimamenn fóru með eins marks forskot 17:16 inn í hálfleikinn.

Fram var áfram með frumkvæðið fyrri hluta síðari hálfleiks en Víkingum tókst að jafna 24:24 og aftur 25:25 þegar hálfleikurinn var um það bil hálfnaður. Víkingur skoraði svo einnig næstu fjögur mörk og breyttu stöðunni í  29:25.

Gestirnir voru áfram sterkari á lokakafla leiksins og unnu að lokum átta marka sigur, en Víkingur vann seinni hálfleikinn með níu mörkum 20:11.

Jón Karl Einarsson var markahæstur gestanna með átta mörk úr átta skotum. Kristján Helgi Tómasson og Elvar Otri Hjálmarsson komu næstir með fimm mörk hvor. 

Hjá Fram var Haukur Ingi Hauksson atkvæðamestur með sjö mörk og Marel Baldvinsson skoraði fimm. 

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson úr Fram sækir að marki Víkings.

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson úr Fram sækir að marki Víkings. mbl.is/Anton Brink

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅